Monday, January 28, 2008

Örlaganornirnar mættar á svæðið




Djúpt í leyndardjúpum bíða nornir þrjár

Þær sjóða seyði og búa til spár

Ef hulinn ertu, þær komast því að

Eiturtungurnar hakka þig í spað


Sannleikur og slúður munu koma hér í ljós

Hvort kalli á horninu sé með stúlku eða drós

Þær leynast í hverju húmskoti í þessum heimi

Þær komast að öllu sem er hér á sveimi


Örlaganornir eru mætta með látum

Vonumst til að halda ykkur kátum

Ef ekki, þá er okkur slett sama

Við erum hér til að skapa drama


Urður, Verðandi og Skuld


Já þannig hljóðar inngangur okkar örlaganorna. Við ætlum að fylgjast með í umhverfis- og byggingaverkfræðiheiminum og kynna ykkur fyrir leyndardómum hans, nú þarf hver að vara sig, múhahaha.

Það helsta sem er á vörum manna er hið verðandi árlega grímupartý sem mun verða næstkomandi föstudag. Heyrst hefur að hver sá sem komi ekki í búning verði fyrir refsingu, allt frá brottrekstri úr veislunni yfir í ýmsar athafnir sem menn og konur geta framkvæmt til að fá inngöngu á búning.

Strákar þurfa að kyssa Gísla rembingskossi, þá fá þeir frían passa inn í partýið ef þeir hafa engan búning ef svo má að orði komast

Svo er í boði fyrir bæði kyn, stráka jafnt sem stelpur að ef þau eru búningslaus að strippa sig inní partýið, það verður svo forvitnilegt að sjá hverjir koma í búning og hverjir ekki, efllaust margir sem vilja sjá Gísla kyssa stráka rembingskossum. Veitt verða verlaun fyrir besta búninginn þannig að það er hver að vera sem frumlegastur.

Jæja, okkar hefðbundastarf sem nornir kallar, en munið ætíð að við erum ávalt bakvið næsta horn, bíðandi eftir slúðrinu

Kveðja Urður, Verðandi og Skuld