Jæja, örlaganornirnar eru mætta á svæðið með eldheitt slúður í pokahorninu.
Þann 1. febrúar síðastliðinn var haldið GrímuballspartýIÐ þar sem megnið af fræga fólkinu kom saman ásamt nokkrum plebbum sem klæddust ekki búningum.
Plebbunum var refsað harðlega fyrir búningaleysi og þurfti hver sá sem ekki klæddist búning að kyssa Gísla (ofuregóið Agga) í herbergi húseiganda frönskum ofurkossi og þreifa á magavöðvunum ógurlegu eða dansa einkadans fyrir pimpinn Sigurjón sem er afar góður dómari í einkadönsum og hefur dæmt margar einkadanskeppnir í gegnum tíðina og þurftu plebbarnir að standast einkadansprófið ógurlega. Daði stærðfræðikennari mætti einmitt ekki í búning, plebbinn sem hann er og kaus að dansa einkadans fyrir hinn reynda dómara Sigurjón. Heyrst hefur að plebbinn Daði hafi fengið hæstu einkunn af öllum sem dönsuðu og fannst dómara hann sjá fagmannlegar hreyfingar ásamt tækni ættaða frá Asíu, þannig að nú vitum við að það að hann Daði stærðfræðikennari er greinilega ekki allur sem hann er séður.
Nú vita flestir að það er gífurleg keppni innan umbygg nema um hver verði með mestu magavöðvana í vor og fólk hefur verið að æfa stíft síðan keppnin hófst, rétt ber að nefna að ofuregóið Aggi er komið með ágætt forskot og er orðinn skorinn eins og skurðarbretti ef svo má að orði komast, spennandi verður að fylgjast með því svo hver verður sigurvegari þeirrar keppni, en Ofuregóið Aggi þykir afar líklegur.
Nýjustu fregnir herma að Coca-Cola muni styrkja nýju Rambo-myndina , en Rambo og Coca-Cola voru mætt í partýið og virtist gestum veislunnar að það væri afar náið milli þeirra. En sú saga er samt ekki búin, heldur var Rambo við fleiri kvennmenn kenndur þetta kvöld þar sem hann og hin heimsfræga Britney Spears sáust fara heim saman í leigubíl, en spennandi verður að fylgjast með hvað Coca-Cola gerir við því. Margir velta því fyrir sér hvort Rambo sé í rauninni barnsfaðir barns Britney Spears.
Elvis reis upp frá dauðum þegar hann kom sá og sigraði í partýinu, hrifsaði glaður í bragi 2 af 4 verðlaunum og vann besta og fyndnasta búninginn, Elvis tók einnig lagið og stjórnaði fjöldasöng við góðar undirtektir.
Matlab-Man vakti mikinn óhug meðal gesta þegar hann mætti á svæðið með hræðilegan boðskap Matlabs, og neyddi mann og annan til að finna villur í forritum. Heyrst hefur að margir hafi fengið matlab martraðir eftir þessa lífsreynslu og fólk er þegar farið að panta hóptíma hjá sálfræðingi.
Horatio Cain úr CSI miami þurfti að rannsaka afar flókið mál sem kom upp í veislunni, hver var svarti maðurinn. Hann setti upp sólgleraugun og komst að lausn málsins.
Stríplingurinn Matti, kom sá og sigraði EKKI þegar hann komm inn með búning sinn „stríplingur í verkfalli“ og klæddist fötum, en hlaut fyrir þann búning skammarverðlaun og þurfti að éta súrt slátur ásamt vondum bjór, þar sem fólki fannst þetta varla vera búningur ákváðu menn að hann þyrfti að fá refsingu plebbanna og þar sem hann var stríplingur í verkfalli þurfti hann að kyssa Gísla, en Ofuregóið Aggi sagði að Matti hafi ekki smakkast vel, ef svo má að orði komast.
Superman og Supergirl hittust í fyrsta skipti í veislunni og urðu þeir mestu mátar, fóru yfir hetjusögur og báru saman nótur um hvernig sé best að fljúga, bjarga fólki og fl í þeim dúr, Superman hafði supermanmerkið fyrir þann líkamspart sem hann vildi undirstrika mest, sem sagt í klofinu og supergirl hafði merkið á þeim líkamspart sem hún vildi undirstrika mest, á bringunni, svona eru hetjurnar í dag.
Jæja örlaganornirnar kveðja
Urður Verðandi og Skuld

2 comments:
er ekkert svaðalegt slúður í gangi núna?????????????
Vá hvað það gerist lítið í lífi okkar verkfræðinema....ekkert slúður?!?!?!?!?!
Post a Comment