
Djúpt í leyndardjúpum bíða nornir þrjár
Þær sjóða seyði og búa til spár
Ef hulinn ertu, þær komast því að
Eiturtungurnar hakka þig í spað
Sannleikur og slúður munu koma hér í ljós
Hvort kalli á horninu sé með stúlku eða drós
Þær leynast í hverju húmskoti í þessum heimi
Þær komast að öllu sem er hér á sveimi
Örlaganornir eru mætta með látum
Vonumst til að halda ykkur kátum
Ef ekki, þá er okkur slett sama
Við erum hér til að skapa drama
Urður, Verðandi og Skuld
Já þannig hljóðar inngangur okkar örlaganorna. Við ætlum að fylgjast með í umhverfis- og byggingaverkfræðiheiminum og kynna ykkur fyrir leyndardómum hans, nú þarf hver að vara sig, múhahaha.
Það helsta sem er á vörum manna er hið verðandi árlega grímupartý sem mun verða næstkomandi föstudag. Heyrst hefur að hver sá sem komi ekki í búning verði fyrir refsingu, allt frá brottrekstri úr veislunni yfir í ýmsar athafnir sem menn og konur geta framkvæmt til að fá inngöngu á búning.
Strákar þurfa að kyssa Gísla rembingskossi, þá fá þeir frían passa inn í partýið ef þeir hafa engan búning ef svo má að orði komast
Svo er í boði fyrir bæði kyn, stráka jafnt sem stelpur að ef þau eru búningslaus að strippa sig inní partýið, það verður svo forvitnilegt að sjá hverjir koma í búning og hverjir ekki, efllaust margir sem vilja sjá Gísla kyssa stráka rembingskossum. Veitt verða verlaun fyrir besta búninginn þannig að það er hver að vera sem frumlegastur.
Jæja, okkar hefðbundastarf sem nornir kallar, en munið ætíð að við erum ávalt bakvið næsta horn, bíðandi eftir slúðrinu
Kveðja Urður, Verðandi og Skuld

3 comments:
Það er bara ekki satt. :) Enginn fær að kyssa mig þetta kvöld, hvort sem það er kona eða karl, nema þó ein ung dama.
Mættar með látum... vantar R . .. en já mér finnst þetta öflugt framtak. Gaman að sjá hvaða leyndardóma þetta blogg á eftir að leiða í ljós ;D
Hinsvegar hlýtur þessi aðgangskoss sem karlmenn þurfa að kyssa Gísla til að komast inn.. að vera franskur rembingur. Því annars yrði of létt að komast inn án búnings :D
Gaman verður líka að sjá hverjar örlaganornirnar þrjár eru. Eitt er víst að ekki er um að ræða karlmenn hér því að karlmenn gangast ekki undir kvennmanns nöfn ( fóstri, flugþjónn osfr.) Þannig að þá yrðu þetta Galdramennirnir 3 eða nornarnir :P
Engar vísbendingar um the true identity nornanna?
úúú er þetta svona eins og gossip girl í þættinum gossip girl..
ég er spennt
hahhaha!!!
Post a Comment